Því miður kom að því að ég neyddist til þess að stofna blogg. Ég hafði annars heitið því að gera það aldrei en núna var ekki hjá því komist. Annars fannst mér eiginlega alveg nóg að gera út af við nánustu meðlimi fjölskyldunnar með ruglinu í mér. Engin ástæða til þess að láta það bitna á restinni af þjóðinni sem gæti af ýmsum óglöggum ástæðum villst til þess að skoða þetta.
En allavega, nú er þetta komið og þið verðið þá bara að hafa samband við háskólann ef þið eruð eitthvað ósátt.
Lífið í miðbænum gengur sinn vanagang. Hef samt illan grun um að það rigni meira hér en annars staðar á klakanum. Meira að segja Bella (labrador, tík, 6 ára) sendir mér illt auga þegar ég opna hurðina og segji "allir út að pissa". Ég er eiginlega viss um að á bak við augnaráðið er hugsunin "ja, ekki þarft þú að fara út".
Annars er Bella í harðri samkeppni við fartölvuna þessa dagana og virðist hafa takmarkaðann skilning á setningunni "mamma þarf að klára verkefni". Greyið er alveg að fara á límingunum yfir athyglisleysi og smáskammtagöngutúrum.
Jæja, látum þetta gott heita í bili, þarf að klára verkefni.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment