Við Bella ákváðum í gærkvöldi að ráðast á glugga og rimlagardínur í stofunni þrátt fyrir að jólin verði í BYKO í ár. Gardínurnar voru teknar niður og hengdar inn í sturtuklefa þar sem þær fengu fituleysir og sturtu á eftir og gluggarnir voru þvegnir og pússaðir í millitíðinni.
Þar sem tíminn fyrir ljósin er að nálgast með ógnarhraða fórum við líka og náðum í jólaseríurnar og komum þeim fyrir í gluggunum fyrst gardínurnar voru komnar niður á annað borð.
Ég sá um vinnuna meðan Bella og Teddy fylgdust með og þetta skot gekk allt saman. Að vísu komu upp vandamál með hundalappir flæktar í seríum sem ég var búin að greiða úr á gólfinu og það þurfti að útskýra fyrir þeim báðum að jólaseríur væru ekki til þess að liggja á en annars gekk þetta nokkurn vegin áfallalaust. Allavega þangað til ég var búin með fyrsta gluggan og fór inn á bað til að skola næstu gardínu.
Vaskafatið með sápuvatni frá gluggaþvottinum stóð á stofugólfinu og einhverra hluta vegna virðist fröken Bella hafa alveg nauðsynlega þurft að leifa Teddy að líta ofan í það. Ég missi gardínu á gólfið í sturtuklefanum og Bellu virðist hafa brugðið svo mikið að hún missti Teddy beint ofan í vaskafatið. Sem betur fer fór hún ekki út í björgunaraðgerðir sjálf en beið pent horfandi ofan í fatið þangað til ég kom á vettvang nokkrum mínútum seinna. Teddy greyið var á þessum punkti orðinn það blautur að það var ekki um annað að ræða en að skella honum í þurrkarann í 10 mínútur.
Það varð náttúrulega nokkur dramatík í kringum þurrkunina og Bella var alveg sármóðguð yfir meðferðinni á Teddy en sem betur fer var hægt að bjarga öllu saman með grísaeyra.
No comments:
Post a Comment