Nú er maður loksins komin á síðustu metrana á þessari önn. Bara tvö stór verkefni eftir. Bellu til mikillar ánægju hefur síðasta vika verið frekar afslöppuð vegna þess að skilin eru ekki yfirvofandi fyrr en 9. og 10. desember. Við höfum þrætt miðbæinn á nóttunni í glugga/stauraskoðunarferðum og meira að segja dröslast út fyrir bæinn til þess að fara í frisbee.
Að vísu átti hún erfiða helgi blessunin. Á laugardaginn fór ég á tónleika með Kim Larsen og eins og alltaf eftir góða tónleika varð ég að hlusta á bestu lögin aftur þegar heim var komið. Kim var skellt inn á tölvuna og rokkaði á meðan ég reyndi að fá einhvern botn í html-kóðun. Eftir nokkurn tíma kom Bella sármóðguð og með stýrurnar í augunum innan úr svefnherbergi með svip sem benti til þess að hún væri hér með komin með alveg nóg af dönsku í bili og væri tilbúin til þess að prófa eyrnatappa til þess að fá einhvern svefnfrið. Eftir að hún hafði setið fyrir framan stofuborðið með "mamma farðu að lúlla" svipinn í nokkurn tíma gaf ég mig og við röltum inn í rúm.
Á sunnudag var Bellupabbi lasinn og lá á sófanum með tilheyrandi stunum og kveinum. Fyrst þurfti Bella að sitja og fylgjast með að hann væri alveg örugglega ekki að kafna af því að hann hraut svo hátt. Hún ætlaði líka að fara upp í sófa til þess að hlýja honum á fótunum og sendi mér "þér er alveg sama um pabba" svipinn þegar ég rak hana niður með harðri hendi. Þegar hann vaknaði af svefninum þurfti hún að kyssa hann bak og fyrir og náði meira að segja í Teddy til að lána honum meðan hann var svona lasinn. Þegar pabbi sýndi ekki mikil viðbrögð við Teddy og sofnaði aftur ákvað hún að hann þyrfti kannski meira dót til þess að líða betur. Allavega sýndist mér hún hafa dundað sér við að leita uppi ýmsa bangsa, bolta og bein sem hún hlóð ofan á pabba sinn í sófanum meðan ég var að lesa aðferðafræði inni í svefnherbergi. Því miður var pabbi bara alls ekki ánægður með að lúlla ofan á einhverju beini og Bella greyið fékk lítið annað en skammir fyrir alla vinnuna. Eftir það var hún frekar fúl og lét þennan óþakkláta kall bara eiga sig. Miklu betra að fara bara inn í rúm og leggja sig fyrst það er laust hjá mömmu og bókinni.
No comments:
Post a Comment