Monday, November 5, 2007

Hugurinn

Það kemur mér sífellt á óvart hvað heilinn í manni er duglegur að grafa óþægilega hluti einhversstaðar þar sem maður er ekki líklegur til þess að rekast á þá svona dags daglega. Innbyggð vírusvörn værs'go. Gallinn er bara að stundum eru þeir einstaklega vel faldir og maður getur ekki með nokkru móti munað bjánalegustu hluti af því að þeir hafa einhverra hluta vegna verið flokkaðir undir kategoríuna "getur valdið skaða á geðheilsu".
Til dæmis í gær voru Richard og Stella frá London að velta fyrir sér hvort þau ættu að koma til Íslands og verja gamlárskvöldi hjá okkur. Stella var að velta fyrir sér hvort það væri ekki lítið dagsljós á þessum árstíma og lýsti yfir nokkrum áhyggjum vegna þess. Eftir nokkra leit komst ég að þeirri niðurstöðu að þessar upplýsingar voru harðlæstar einhversstaðar undir geðheilsukategoríunni og ekki nokkur leið að fá aðgang. Á endanum þurfti að grípa til þess ráðs að googla "daylight hours iceland" í leit að upplýsingunum.
Þetta valdi mér nokkrum heilabrotum því ég gat bara ekki skilið hvernig svona einfaldar og í fljótu bragði séð skaðlausar upplýsingar geta virst horfnar úr heilabúinu. Eftir nokkra umhugsun komst ég þó að þeirri niðurstöðu að vírusvörnin væri ekkert að klikka. Aðgerðin var einfaldlega framkvæmd til þess að koma í veg fyrir að skammdegisþunglyndið héldi innreið sína strax í september bara við tilhugsunina um 4-5 tíma hálfbirtu á dag seinna á árinu. Núna er google náttúrulega búið að eyðileggja allt saman með nákvæmum upplýsingum og ég var rifin úr ástandi lukkulegrar gleymsku inn í dimman veruleikann.

1 comment:

Þorgerður AKA Toggan said...

Bráðskemmtilegt blogg þá þér.
Nú þarf ég bara að kveikja... hver er Ásta?