Tuesday, November 20, 2007

Jólaundirbúningspanik

Við Bella vorum alveg afskaplega sprækar í morgun og ákváðum að smyrja samlokur handa pabba til að hafa með í vinnuna. Bella sá um gæðaeftilrlitið og ég smurði. Þegar það var búið rákum við kallinn af stað og fórum sjálfar út í labbitúr.
Við stálumst til að trítla smá spöl niður Laugaveginn (hundar alveg bannaðir) og allt í einu tók ég eftir að það er búið að skreyta helstu verslunargötur bæjarins. Þetta orsakaði þó nokkra panik hjá heilasellunum af því að þær voru einhvernvegin vissar um að við værum ennþá í byrjun nóvember og voru ekkert komnar að þessu vandamáli. Nú fóru hins vegar alls konar skilaboð um glugga/gardínuþvotta og jólaseríur að skjótast fram og tilbaka í kollinum á mér. Bella var upptekin við að skoða staura af ýmsum stærðum og gerðum og enga samúð að fá frá þeirri hendi. Enda þarf hún ekki að gera annað en að fara í gegnum jólakassana og athuga hvort þar leynist eitthvað ætilegt.
Við veltum málinu fyrir okkur á leiðinni heim og fengum ekki alveg séð hvernig við ættum að hafa tíma fyrir þetta allt saman. Lausnin lá hins vegar á dyramottunni þegar við komum heim. "Jólin eru í BYKO" blasti við okkur. Þá þurfum við náttúrulega ekkert að vera að hafa áhyggjur af þeim fyrst þau eru bara þar.

No comments: