Sunday, December 9, 2007

Váá... Langt síðan

Mikið svakalega er langt síðan við höfum bloggað eitthvað við mæðgurnar. Því miður vorum við víst of rólegar síðast því núna erum við komnar í tímastapp aftur. Heilasellurnar eru farnar í verkfall, allavega hefur ekkert spurst til þeirra síðan einhverntíma í byrjun síðustu viku, og ég verð víst að viðurkenna að þó að þær geti verið erfiðar og afskiptasamar á köflum þá er ég farin að sakna þeirra í augnablikinu.
Vefsíðan er komin á netið (vonandi) með smá hjálp frá heilasellum annarra (rosalega er þetta háskólakerfi picky, stórt V eða lítið, who cares) og nú er bara eftir að leggja síðustu hönd á verkið. Ekki það að ég geri mér stórar hugmyndir um stafsetningarkunnáttu og svoleiðis fyrst að sellurnar fóru en maður verður víst að reyna að gera sitt besta. Ég er hins vegar komin á þá skoðun að ég hefði átt að velja mér annað efni fyrir síðuna. Þegar ég horfi á Bellu blessunina sé ég nú orðið ekkert annað en vefsíður, verkefni og vandamál og greyið er farin að halda að mér sé alveg sama um hana. Oh well, það eru að koma jól og þá verður þetta allt bætt upp með hamborgarahrygg og brúnuðum kartöflum.
Annars er Bella í góðum gír. Kvartar lítið þessa dagana. Ætli hún sé ekki búin að sjá á augnaráðinu sem ég sendi henni að þetta sé eins og í fyrra. Annaðhvort var ég að flokka hana eftir Dewey-kerfinu eða að finna lyklunarorð yfir hana. Þá er trúlega betra að halda sig bara í rúminu og leifa mömmu að tapa glórunni í friði.
Ég vildi bara að hún vissi hversu mikið hún er í huga mér. Þegar ég lít tilbaka á síðustu 3 annir hafa flest af þeim stóru verkefnum sem ég hef unnið snúist um hana.


"I wish I was everything my dog thinks I am"
Höfundur óþekktur.

0 comments: