Á mbl.is í morgun var frétt um að hundaeigendur í miðborginni væru ekki nógu góðir í að hirða upp skítinn eftir fjórfætlingana. Í því sambandi var Njálsgatan einhverra hluta nefnd.
Bella vill taka það fram að hún er alsaklaus af öllu slíku, notar bara hundaklósettið í bakgarðinum og að Bellumamma er alltaf með poka ef ske kynni að það verði slys þegar við förum í labbitúr. Bellumamma hefur persónulega aldrei séð neinar klessur á gangstéttinni og undrar sig á umræðunni sem henni virðist tilefnislaus.
Hins vegar höfum við Bella oft velt þessum hundaumræðum fyrir okkur. Það virðist oft ekki þurfa mikið tilefni til þess að þeir sem ekki eru hrifnir af hundum fari að væla yfir alls konar hlutum meðan kettirnir þeirra eru að gera alla í kringum þá vitlausa. Kannski við Bella förum bara bráðum að hafa samband við borgaryfirvöld og heimtum að eitthvað verði gert í stöðugri traffík katta í gegnum garðinn hjá okkur. Svo við tölum nú ekki um bætur fyrir uppgrafna blómlauka og plöntur sem þeir eyðilögðu í fyrra sumar. Eða kattaskítinn um öll blómabeð.
Af hverju þarf enginn að bera ábyrgð á því?
No comments:
Post a Comment