Bella var svaka nervös í gærmorgun og átti í miklum erfiðleikum með að ákveða í hverju hún ætti að vera (altso hálsól). Hún fékk nefnilega það mikilvæga hlutverk að standa heiðursvörð fyrir utan kirkjuna á meðan jarðarför Ástrósu frænku stóð.
Hún ákvað á endanum að fara í skrautlegu stelpuólina sem frænka hennar hefði verið svaka ánægð með. Eins og alltaf hjá konum sá hún að hún var ekki rétt dressuð þegar hún kom á staðinn, allir hinir voru í "galla"dressinu. Eftir smá uppnám yfir þessum misskilningi ákvað hún að taka þessu með ró og virðingu og standa sinn vörð. Eina skiptið sem henni fataðist var þegar hún sá Bellumömmu koma grátandi út úr kirkjunni.
Ég er alveg viss um að ef Bella hefði haft meiri skilning á afhverju hún sat fyrir framan kirkjuna með 9 öðrum Labradorum, þá hefði hún líka grátið. Við Bella getum þakkað Ástrósu fyrir svo margt. Bella hefði trúlega aldrei komist til Íslands ef Ástrós hefði ekki hjálpað okkur. Ástrós fór með Bellu í veiðiþjálfun þegar ég var að vinna næturvinnu. Bella fékk að vera í Hæðargarðinum þegar ég fór til útlanda... .
Við eigum báðar eftir að sakna hennar ákaflega mikið. Hún var "mamma" okkar, vinur og frænka.
Ásta María og Bella