Það er náttúrulega skammarlegt hvað það er langt síðan við Bella höfum tjáð okkur á þessu bloggi okkar en nú erum við mættar og verðum vonandi duglegri í framtíðinni.
Það tók dálítinn tíma að hrista af sér vetrarþunglyndið en sem betur fer tókst það á endanum og sumarið er búið að vera ágætt.
Bella fór í sumarbústað á Snæfellsnesinu meðan Bellumamma skaust í afmæli til pabba síns í Danmörku. Bogga og Nenna stjönuðu svo mikið við Bellu meðan hún var hjá þeim að hún var alls ekkert viss um að hún vildi fara heim með mömmu sinni þegar hún kom að sækja hana eftir 10 daga. Ég held líka að þeim hafi þótt tómlegt í kotinu eftir að hún var farin. Þær gáfu hins vegar ekki mikið fyrir hæfileika hennar sem fjárhundur, þar sem að eina leiðin til þess að fá hana til þess að reka rollur af landinu var að sparka fótbolta í áttina að þeim. Þá hljóp Bella voða glöð og náði í boltann og hræddi óafvitandi rollurnar (sem hún leit ekki einu sinni á) í burtu.
Við erum líka búnar að fara í tvær útilegur. Það liggur við að sú síðari hafi verið hálfgert ættarmót hjá Bellu. Snoopy sonur hennar og Nala dótturdóttir hennar voru með okkur í tjaldbúðum svo það var mikið fjör og mikið rifist um bolta. Bella var nú ekkert of hrifin af þessum afkomendum sínum en lét sig hafa það af því hún var svo eina sem er nógu þæg til að þurfa ekki að vera í bandi og það var alltaf einhver sem nennti að sparka fótbolta fyrir hana.
Við erum ennþá að reyna að ákveða hvert við ætlum að fara um helgina. Ég held að við eltum bara besta veðrið. Það verður allavega örugglega "spilaður" fótbolti.