Það er orðið svo langt síðan við skrifuðum síðast að við ætlum sko ekki einu sinni að reyna að segja frá öllu sem hefur drifið á daga okkar í millitíðinni.
Bella var voða glöð um helgina eftir að rigningin afhjúpaði Teddy sem var búinn að vera týndur í skafli í garðinum í þó nokkurn tíma. Því miður þýddi þetta að hann fékk ferð í þvottavélina og þurrkarann einu sinni enn og það skyggði nokkuð á ánægjuna. Hún hafði samt meiri áhyggjur af aðgerðinni sem hann þurfti að gangast undir áður en hann fór í baðið. Hann hlaut greinilega einhverja áverka á maga og afturenda þegar Bella og Snoopy voru að togast á um hann um jólin svo ég þurfti að draga fram saumakassann (erfðagripur eftir móður mína, frekar lítið notaður) og sauma í hann nokkur spor. Bella lá á gólfinu og fylgdist með saumaskapnum og saup hveljur yfir meðferðinni á babyinu hennar. Ég held ég sé orðin umtöluð sem versta mamma í heimi í hundasamfélaginu á Njálsgötunni.
Annars er voða lítið að frétta af okkur. Erum enn nokkuð rólegar yfir skólanum svo Bella hefur fengið nóga athygli upp á síðkastið. Bara synd hvað veðrið hefur verið leiðinlegt, göngutúrar hafa verið mótaðir út frá veðurfari og hafa því oft verið frekar stuttir. Bella er líka komin í enn harðari samkeppni við tæknina eftir að tölva númer tvö flutti inn á aðfangadagskvöld, hún er algerlega ósammála þegar ég segi henni að pabbi hafi verið voða góður að gefa mömmu nýja tölvu í jólagjöf. Núna getum við bæði hangið yfir þessum aðskotahlutum og það er bara alls ekki ásættanlegt að hennar mati. Ætli hún fari ekki bráðum að heimta sína eigin.