Saturday, April 19, 2008

Einar heima

Eftir að hafa hugsað málið í næstum 2 mánuði tók Bellupabbi á endanum ákvörðun um að halda til Bretlands til þess að taka þátt í 21 ára afmælisveislu sonar síns. Ákvörðunin var tekin 14 tímum áður en vélin átti að fara í loftið og þar sem Bellumamma var búin að gera aðrar áætlanir varð hún að vera eftir heima.
Það gerði hins vegar ekkert til, því við Bella erum búnar að hafa það aldeilis kósý í dag. Eftir að hafa skilað Bellupabba á BSÍ í eftirmiðdag héldum við beint í labbitúr á vídeóleiguna þar sem við náðum okkur í 3 DVD og fullt af ruslfæði. Þegar heim var komið voru náttfötin dregin fram, ruslfæðinu og grísaeyrum staflað á náttborðið og alger leti var sett í gang. Við Bella flatmöguðum í rúminu í algjörri ró og næði. Enginn til að nöldra yfir letinni í Bellumömmu eða voffa sem átti að vera á gólfinu.
Ekki það að við söknum ekki Bellupabba en það er nú samt stundum gott að fá að vera algerlega maður sjálfur í nokkra daga. Við Bella erum búnar að ákveða að gera bara nákvæmlega það sem okkur sýnist, þegar okkur sýnist, næstu 3 dagana.