Thursday, September 18, 2008

Það er leikur að læra...

Eftir miklar vangaveltur og taugaveiklun tók Bellumamma á endanum þá ákvörðun að skella sér bara í dönskuna. Hún mætti í fyrstu tímana með hjartað í buxunum, handviss um að danska á háskólastigi hlyti að vera varasamt ævintýri.
Eftir að hafa snarað íslenskum setningum yfir á dönsku fyrstu tvo tímana léttu töluvert yfir henni. Hins vegar átti hún ennþá eftir að mæta í svokallaða hlóðfræði og var alls ekki viss um hvað það eiginlega væri. Ég veit ekki hvort þið getið ímyndað ykkur hvað hún varð glöð þegar það kom í ljós að það eina sem hún þarf að gera í hljóðfræði er að tala dönsku. Jamm, endurtaka orð eftir einhverri spólu til þess að ná réttum framburði :-)
Held að kennarinn hafi verið voða skúffuð þegar að Bellumömmu tókst ekki einu sinni að klúðra "rödgröd med flöde" fyrir hana.


Sunday, September 7, 2008

Skóli aftur :-(

Bellumamma á að vera byrjuð í skólanum aftur. Hún er búin að mæta í einhverja tíma og reyna að fylgjast með en það er bara voða erfitt að mæta á 3 staði í einu. Þess vegna er hún að hugsa um að "svindla", eins og Bellupabbi segir, og taka aukagrein í dönsku.
Eins og allir vita er Bellumamma svo mikill aumingi að hún gerði skoðanakönnun um málið og helstu niðurstöður voru að það væri A) Ekki svindl B) Bara gott að reyna að gera þetta auðvelt C) Er ekki í lagi með þig að vera ekki einu sinni búin að gera þetta.
Við erum ennþá að velta þessu fyrir okkur.